• 28/11/2023

    Málþing um samstarf ferðaþjónustu og safna, safnvísa, setra og sýninga verður haldið í sal Þjóðminjasafns Íslands föstudaginn 8. desember 2023.

    Að málþinginu standa Félag íslenskra safna og safnafólks, Safnafræði við Háskóla Íslands og Samtök ferðaþjónustunnar.

    Málþingið er ókeypis og öllum opið en við biðjum fólk að skrá sig svo hægt sé að áætla veitingar: https://forms.gle/CsqR8EB2Yqc3qvxW7

     

    Dagskrá:

    10.00-10.10. Setning málþings.
    10.10-10.30: Guðrún D Whitehead – lektor í safnafræði. Söfn og ferðaþjónusta: Niðurstöður könnunar kynntar.
    10.30-10.50: Aníta Elefsen – formaður FÍSOS og safnstjóri Síldarminjasafns Íslands. Söfn: Faglegar stofnanir á sviði minjavörslu eða hluti ferðaþjónustunnar?
    10.50-11.10: Jóhannes Þór Skúlason – framkvæmdarstjóri SAF. Eru söfn ferðaþjónustuaðilar eða menningarstofnanir?
    11.10-11.40: Fyrsta pallborðsumræða. Þátttakendur auk fyrirlesara:
    Berglind Þorsteinsdóttir, safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga
    Bjarnheiður Jóhannsdóttir, rekstraraðili Eiríksstaða.

     

    11.40-12.30: Hádegishlé – léttur hádegisverður

     

    12.30-12.50: Arnar Már Ólafsson, ferðamálastjóri. Árangursríkt samstarf safna og ferðaþjónustu.
    12.50-13.10: Hjalti Már Einarsson, viðskiptaþróunarstjóri Datera. Geta söfn verið seglar í íslenskri ferðaþjónustu?
    13.10-13.30: Sigurjón Baldur Hafsteinsson, prófessor í safnafræði. Stríð safna og ferðaþjónustu.
    13.30-14.00: Pallborðsumræða. Þátttakendur auk fyrirlesara:
    Hjörtur Gísli Sigurðsson, forstöðumaður Hins íslenzka reðasafns
    Guðbrandur Benediktsson, forstöðumaður Borgarsögusafns

     

    Fundarstjóri: Arndís Bergsdóttir – aðjúnkt í safnafræði.
    Málþingið verður tekið upp og upptakan birt á Youtube síðu SAF. Tengill á útsendinguna verður birtur á Facebook viðburðinum að morgni föstudags (https://www.facebook.com/events/1400591410530895)