Félagið var stofnað árið 1981 í þeim tilgangi að efla samstarf og menntun þeirra sem starfa á lista-, minja- og náttúrufræðisöfnum á Íslandi.
Meira um FÍSOSFarskóli FÍSOS hefur verið haldinn á hverju ári síðan 1989. Farskólinn er mikilvægur vettvangur endurmenntunar og samstarfs meðal íslenskra safna. Á hverju hausti hittast safnmenn, bera saman bækur sínar, skoða hvað er verið að gera á landinu í safnamálum og styrkja sín tengslanet. Á farskólanum er aðalfundur félagsins haldinn, kosið er í stjórn og málefni FÍSOS rædd. Síðast en ekki síst er árshátíð haldin á hverjum farskóla en henni er alltaf beðið með mikilli eftirvæntingu.
Meira um farskólannFélagið er vettvangur fyrir félagsmenn til að hittast, tjá skoðanir, aðstoða hver annan og styðja við safnastarf í landinu.
Sækja um aðild