Stjórn FÍSOS – Félags íslenskra safna og safnmanna boðar hér með til aðalfundar félagsins mánudaginn 9. október 2023 kl. 16:00 í Kornhúsinu á Árbæjarsafni.
Dagskrá aðalfundar:
Óskað er eftir framboðum til stjórnar í stöðu varaformanns, gjaldkera og ritara. Þá er einnig lýst eftir framboði til varamanns í stjórn sem og eins skoðunarmanns reikninga.
Athygli er vakin á því að núverandi gjaldkeri, ritari og varamaður gefa ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu – og er því leitað þriggja nýrra stjórnarmanna.
Áhugasöm geta lýst yfir framboði með því að senda tölvupóst á stjorn@safnmenn.is og þurfa framboð að hafa borist sjö dögum fyrir aðalfund.
Kjörgengi hafa þeir félagsmenn sem greitt hafa árgjald félagsins fyrir aðalfund eða eru heiðursfélagar.
Vægi atkvæða á fundum félagsins er einn félagsmaður, eitt atkvæði og ein stofnun, eitt atkvæði. Fer forsvarsmaður stofnunar með atkvæði hennar á fundum félagsins eða fulltrúi í umboði hans.
Bestu kveðjur frá stjórn FÍSOS,
Í stjórn félagsins 2022-2023 sitja:
Formaður: Anita Elefsen, Síldarminjasafn Íslands.
Varaformaður: Elsa Guðný Björgvinsdóttir, Minjasafn Austurlands.
Gjaldkeri: Jón Allansson, Byggðasafnið á Görðum.
Ritari: Ingibjörg Áskelsdóttir, Borgarsögusafn Reykjavíkur.
Meðstjórnandi: Þóra Sigurbjörnsdóttir, Listasafn Einars Jónssonar.
Varamenn: Hjörtur Þorbjörnsson, Grasagarður Reykjavíkur og
Sigríður Þorgeirsdóttir, Þjóðminjasafn Íslands.