• 10/05/2023
    Íslandsdeild ICOM, FÍSOS og safnaráð blása til málþings í aðdraganda Alþjóðlega safnadagsins undir yfirskriftinni Söfn, sjálfbærni og vellíðan, sem jafnframt er þema safnadagsins árið 2023. Málþingið verður haldið í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands þriðjudaginn 16. maí kl. 13:00-16:00 en að því loknu verður boðið upp á léttar veitingar í Myndasal safnsins. Á dagskránni verða erindi sem varpa ljósi á ýmis verkefni og fjölbreytt starf safna til þess að stuðla að aukinni sjálfbærni og vellíðan í samfélaginu.
    Vinsamlegast athugið að málþinginu verður einnig streymt í gegnum Facebook.
    Dagskrá
    13:00: Málþing sett
    13:05: Lykilfyrirlestur
    Söfn og vellíðan
    „Í þessu opnunarerindi verður rætt um tengsl safna við hugtakið vellíðan. Sérstaklega verður vikið að rannsóknarverkefninu Inclusive Memory sem snýr meðal annars að því að skoða með hvaða hætti söfn þurfa að huga að vellíðan gesta sinna.“
    Sigurjón Baldur Hafsteinsson, prófessor í safnafræði við Háskóla Íslands, og Halldóra Arnardóttir, listfræðingur
    13:30: Tökum höndum saman: söfn og jaðarhópar
    Halla Margrét Jóhannesdóttir, verkefnastjóri miðlunar, Listasafni Reykjavíkur, og Hlín Gylfadóttir, verkefnastjóri samfélagsverkefna og safnfræðslu, Borgarsögusafni Reykjavíkur
    13:50: Þekkingarbrunnur eldri kynslóða: samvinnuverkefni um greiningu gamalla ljósmynda
    Edda Björk Jónsdóttir, sérfræðingur á sviði fræðslu og miðlunar, Síldarminjasafni Íslands
    14:10: komd’inn – ادخل – proszę wejdź – come in: ráðgjafahópur og viðburðadagskrá í Gerðarsafni
    Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, listfræðingur
    14:30: Hlé
    14:40: Lykilfyrirlestur
    Í sautján horn að líta hjá söfnum: sjálfbærni, sjálfbær þróun og heimsmarkmið
    „Hver eru samlegðaráhrif sjálfbærni og faglegs starfs safna? Geta söfn stutt við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna? Í fyrirlestrinum verður rýnt í hlutverk safna í sköpun sjálfbærrar framtíðar íslensks samfélags.“
    Bergsveinn Þórsson, dósent við Háskólann á Bifröst
    15:05: Viðnám – samspil myndlistar og sjálfbærni
    Ragnheiður Vignisdóttir, fræðslustjóri, Listasafni Íslands
    15:20: Tækniminjasafn Austurlands – sjálfbær endurreisn? Þrjú raundæmi
    Elfa Hlín Sigrúnar Pétursdóttir, safnstjóri, Tækniminjasafni Austurlands
    15:40: Sjálfbærni og starfsemi Grasagarðs Reykjavíkur
    Hjörtur Þorbjörnsson, forstöðumaður Grasagarðs Reykjavíkur
    16:00: Málþingi slitið – boðið upp á léttar veitingar í Myndasal