• 20/01/2023

    ATHUGIÐ! Fullbókað er orðið í Farskólann í Amsterdam 2024. Ekki er hægt að tryggja þeim sem skrá sig héðan af pláss í ferðinni.

    Farskóli safna og safnafólks verður haldinn í hinni margrómuðu safnaborg Amsterdam og nágrenni hennar. Í Amsterdam er að finna stórkostleg söfn, sögu, síki, blóm, bjór og fjölbreytileika. Hollendingar eru þekktir fyrir hugrekki í safnamálum og við getum eflaust læra margt af kollegum okkar.

    Úrval Útsýn mun sjá um að koma farskólanemum á áfangastað. Við gistum öll á sama hóteli sem heitir Movenpick og er fjögurra stjörnu hótel í hjarta Amsterdam. Fjöldi þátttakenda takmarkast við 120 manns. Félagsfólk FÍSOS hefur forgang í ferðina og bókast hún í samræmi við eftirfarandi tilboð.

     

    Skráning fer fram hér:

    https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSd3mX0jnoxK4L_N4grNcJPRzmLeyr4uUXv1ScQnS1PJlhLVdQ/viewform?fbclid=IwAR1y6hVdxrg_gDxU1FXGLVZCWDMfbIAqQwMwNL-ioaqYEQZjHR1YhrvU9nE

     

    Kostnaður:

    Flug og gisting (greitt til Úrval Útsýn)

    Tvíbýli með morgunmat 165.200 kr. á mann.

    Einbýli með morgunmat 192.200 kr. á mann.

    Innifalið er flug fram og til baka með fararstjórn, flugvallagjöld og skattar, innrituð ferðataska og handfarangur af minnstu gerð, gisting í þrjár nætur með morgunverði og akstur til og frá hóteli.

    Ekki er víst að hægt verði að koma til móts við allar óskir um gistingu en við munum gera okkar besta!

    Farskólagjald (greitt til FÍSOS vegna árshátíðar og safnheimsókna)

    Athugið að farskólagjald verður 40.000 kr. á mann, til viðbótar við kostnað vegna flugs og gistingar. Inni í því er t.d. skipulögð dagskrá, vettvangsferðir og fleira. Gjaldið þarf að greiða í september 2023.

    Skráning og greiðslufyrirkomulag:

    Skráning í farskólann fer fram með því að fylla út ofannefnd skráningarform. Skráningarfrestur er til og með 1. febrúar 2023 eða á meðan laus pláss eru í boði. Athugið að skráning er bindandi.

    Staðfestingargjald, 80.000 kr., greiðist eigi síðar en 6. febrúar 2023. Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt. Fullt gjald er greitt 8 vikum fyrir brottför.

     

    Mögulegt er að framlengja ferðina til sunnudagsins 15. október með fyrirvara um framboð á flugi og gistingu. Þeir sem vilja framlengja ferðina skulu hafa beint samband við Úrval Útsýn fyrir 6. febrúar 2023. Ferðaskrifstofan veitir upplýsingar vegna auka kostnaðar við framlengingu ferðar.

     

    Heimasíða hótelsins: https://www.movenpick.com/en/europe/netherlands/amsterdam/hotel-amsterdam.html

     

    Virðingafyllst

    Farskólastjórn