Stjórn FÍSOS – Félags íslenskra safna og safnmanna boðar hér með til aðalfundar félagsins miðvikudaginn 13. október 2021 kl. 13.30.
Fundurinn fer að þessu sinni fram á Fosshóteli, Stykkishólmi.
Dagskrá aðalfundar:
Óskað er eftir framboðum til stjórnar í stöðu varaformanns, gjaldkera og ritara. Þá er einnig lýst eftir framboði til varamanns í stjórn sem og eins skoðunarmanns reikninga.
Áhugasamir geta lýst yfir framboði með því að senda tölvupóst á stjorn@safnmenn.is. Kjörgengi hafa þeir félagsmenn sem greitt hafa árgjald félagsins fyrir aðalfund eða eru heiðursfélagar.
Vægi atkvæða á fundum félagsins er einn félagsmaður, eitt atkvæði og ein stofnun, eitt atkvæði. Fer forsvarsmaður stofnunar með atkvæði hennar á
fundum félagsins eða fulltrúi í umboði hans.
Bestu kveðjur frá stjórn FÍSOS,
Í stjórn félagsins 2020-2021 sitja:
Formaður: Anita Elefsen, Síldarminjasafn Íslands.
Varaformaður: Gunnþóra Halldórsdóttir, Kvikmyndasafn Íslands.
Gjaldkeri: Jón Allansson, Byggðasafnið á Görðum.
Ritari: Ingibjörg Áskelsdóttir, Borgarsögusafn Reykjavíkur.
Meðstjórnandi: Þóra Sigurbjörnsdóttir, Hönnunarsafn Íslands.
Varamenn: Hjörtur Þorbjörnsson, Grasagarður Reykjavíkur og Sigríður
Þorgeirsdóttir, Þjóðminjasafn Íslands.