• 16/05/2017

     
    GljúfrasteinnViltu gægjast inn um stofuskápana hjá Auði og Halldóri? Gljúfrasteinn tekur þátt í alþjóðlega safnadeginum 18. maí með því að færa heimilið úr klæðum safnsins þegar degi fer að halla og hleypa þannig gestum enn nær heimilislífinu en gert er aðra safndaga ársins.
    Tónlist á fóninum, skápar opnaðir og munir dregnir fram, túrkísbláar flísar baðherbergisins fá að njóta sín fyrir opnum dyrum, Mosfellsdalurinn séður frá svölum skáldsins, þá verður eldhúsinu flíkað alþýðlega og loks gera starfsmenn hreint fyrir sínum dyrum.
    Gljúfrasteinn verður opinn frá 10-22 á safnadaginn og dagskráin hefst kl. 18.
    Heimasíða Gljúfrasteins