• 11/05/2017

     
    17834091_10155136839603397_5275422945243592928_oByggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla tekur þátt í alþjóðlega safnadeginum með viðburði í tengslum við sýninguna Ferming 2017 – Í fullorðinna manna tölu.
    Nokkrir aðilar munu segja frá sinni fermingarupplifun, sunnudaginn 21. maí 2017 kl. 15:30.
    Á sýningunni eru fermingarmyndir frá hinum ýmsu tímabilum, unglingaherbergi í anda áranna 1985-1995 , fermingargjafir sem og fermingargjafaauglýsingar allt frá 19. öld til dagsins í dag.