Fyrstu viðbrögð við vá (vatnstjón) – námskeið í björgun safnkosts
Dagssetning: 28. – 29. september 2026
Staðsetning: Árbæjarsafn, Kistuhyl 4, 110 Reykjavík.
Blái Skjöldurinn í samstarfi við Borgarsögusafn Reykjavíkur bjóða upp á námskeið um björgun safnkosts og fyrstu viðbrögð við vá. Námskeiðið er stutt af Safnaráði.
Hættan af náttúruvá, eldsvoðum og annarri vá er ávallt til staðar og eykst með auknum loftslagsbreytingum. Reynslan sýnir að góður árangur við björgun safnkosts við slíkar aðstæður er háður því að viðbragðaðilar hafi fengið undirbúning æft rétt handtök og viðbrögð. Tilgangur námskeiðsins er að kenna starfsfólki sem hefur með safnkost að gera að skipuleggja og forgangsraða björgun eftir vá og æfa verkferla og réttu handtökin. Eftir námskeiðið verða þátttakendur betur í stakk búnir til þess að bregðast rétt og örugglega við ef að einhverskonar vá á sér stað og ógn steðjar að menningarminjum.
Sviðsett atvik og hlutverkaæfing: Hluti af námskeiðinu er sviðsetning vatnstjóns á safni, þar sem m.a. annars má finna bækur, skjöl, ljósmyndir, málverk, leikföng og fleiri gripi. Með því að setja sig í viðbragsstöðu og upplifa neyð í rauntíma læra þátttakendur að hugsa rökrétt, skipuleggja sig og halda ró sinni í erfiðum aðstæðum. Þannig má bregðast fyrr við, nota réttar aðferðir og lágmarka tjón.
Markmið: Kynnast aðstæðum sem skapast við viðbrögð við vá (vatnstjón) og æfa björgun safnkosts.
Markshópur: Starfsmenn menningarstofnana (bókasöfn, gripasöfn, listasöfn, skjalasöfn).
Lýsing: Námskeiðinu er skipt í tvennt: bóklegt (um 20%) og verklegt (80%). Verklegir þættir eru:
Leiðbeinendur: Ingibjörg Áskelsdóttir og Nathalie Jacqueminet, forverðir og safnafræðingar. Báðar hafa þær reynslu af viðbrögðum og björgun gripa eftir vá.
Sambærileg námskeið hafa verið haldin í Reykjavík, á Egilsstöðum og á Akureyri og mæltust mjög vel fyrir.
Námskeiðsgjald: 15.000 kr. (greitt fyrirfram). Boðið verði upp á kaffi og léttan hádegisverð báða daganna.
Hámarksfjöldi þátttakenda: 16
Skráning: https://forms.gle/6ZeB5Q5KSSCUY8gj8
Skráningarfrestur er til 15. september 2026
————–
Dagskrá
Dagur 1
Kl. 09:00-16:00 (Mæting kl. 09:00. Taka fartölvu með).
Kl. 09:00-10:15 Bóklegt
Kl. 10:15-10:30 Kaffi
Kl. 10:30-12:15 Safnkostur og vatn
Kl. 10:30-10:45 Erindi: Af hverju erum við hrædd við vatnstjón?
Kl. 10:45-11:15 Verkefni: Hvaða gripir eru viðkvæmir fyrir vatni (skipt í hópa)
Kl. 11:15-12:15 Sýnikennsla: Blautir gripir: hvernig lita þeir út? Meðhöndlun: hvað þarf að varast?
Kl. 12:15-13:00 Hádegismatur
Eftir hádegi: verklegt
Kl. 13:00-16:00 Viðbrögð við vá: Æfing, fyrri hluti
Undirbúningur björgunar (sem fer fram daginn eftir): verkefni
Kl. 13:00-13:15 Sviðsmynd útskýrð og skipt í hópa. Allir fá að leika hlutverk, fá ábyrgð á verkefnum og framkvæma þau í tilgreindum hópum.
Kl. 13:15-15:15 Hópavinna
Kl. 15:15-16:00 Kynning á stöðu verkefna
Dagur 2
Viðbrögð við vá: Æfing, seinni hluti
Skref björgunar á vettvangi æfð: flutningur gripa, flokkun, skráning, fyrsta meðferð.
Kl. 09:00 Mæting fyrir framan slysstað. Hópstjórarnir tala við sinn hóp.
Kaffihlé og matarhlé: Aðgerðastjórinn ákveður hvenær hóparnir fara í mat eða kaffi í samráði við hópstjóra.
Kl. 14:30-kl. 16:00 Endurgjöf. Hóparnir segja frá reynslu dagsins.
Upplýsingar veita: nathalieforvordur@gmail.com og ingibjorg.askelsdottir@gmail.com