Kæra safnafólk,
Dagskrá – Farskóla safnmanna 2026 á Ísafirði
Samfélagsleg ábyrgð safna: Aðgengi og inngilding
Þriðjudagur 6. október
Opið á Dokkunni, farskólabarnum
Miðvikudagur 7. október, Edinborgarhúsið
9:45-10:15 Afhending gagna/skráning
10:15 Setning farskólans
10:30-10:55 – Opnunarerindi – Fyrir hvern eru söfn? Þórhildur Tinna Sigurðardóttir hjá Menningarstofu Fjarðabyggðar.
10:55-11:10 Kaffihlé
11:10-12:00 – Pallborð með safnafólki: Inngilding og aðgengi
Í pallborðinu eru Berglind Þorsteinsdóttir hjá Byggðasafni Skagfirðinga, Helga Maureen hjá Borgarsögusafni, Hólmar Hólm hjá Íslandsdeild ICOM og Þórhildur Tinna Sigurðardóttir hjá Menningarstofu Fjarðabyggðar. Þóra Björk Ólafsdóttir hjá Safnaráði stýrir pallborðinu.
12:00 Hádegismatur og Aðalfundur FÍSOS
13:00-13:30 – “Þér er ekki boðið” – Jóna Símonía og Elma Guðmundsdóttir
14:00 – 18:00 Stórskemmtileg skoðunarferð um Suðureyri og Ísafjörð
18:00-18:45 Móttaka í Neðstakaupstað
Kvöldverður á eigin vegum, farskólabarinn verður á Dokkunni
20:30 Sigurjón Baldur Hafsteinsson kynnir nýútkomna bók sína Hugvekjur um söfn og samfélag, á Dokkunni
21:00 Pub quiz á Dokkunni með Silla
Fimmtudagurinn 8. október í Edinborg
9:15-10:00 Erindi frá Samtökunum 78
10:00-10:15 Kaffihlé
10:15-11:15 Málstofur 1:
11:15 Stórskemmtilegur ratleikur um gamla bæinn – hér eru upplýsingar um liðin
12.15 – 12:55 Léttur hádegisverður
13:00-14:00 Málstofur 2
14:00-14:15 Kaffi
14:30-15:30 Málstofur 3
15:30-19:00 Frjáls tími, við munum setja inn tillögur að skemmtilegum heimsóknum þegar nær dregur (Mögulegur fundartími hópa)
19:00 Árshátíð í Edinborgarhúsinu – Forréttur hefst kl. 19:30
Föstudagur 9. október – í Edinborgarhúsinu
10:00 – 10:45 Erindi frá Margréti M. Norðdahl hjá Listvinnzlunni
11:00 – 12:00 Pallborðsumræða: Safnið fyrir utan safnið
12:00-12:55 Léttur hádegisverður
13:00 Farskólaslit í Edinborgarhúsinu
________________________________________________
Ef þið eigið eftir að skrá ykkur í farskólann, en viljið ekki missa af fjörinu, má gera það: Hér.
Athugið að þetta eru drög og á næstunni eiga eftir að koma inn nánari upplýsingar um hitt og þetta!
Það er Facebook hópur fyrir farskólann sem þið megið gjarnan ganga í: Hér.
Það er biðlisti á hótelinu svo okkur langar að biðja þau sem eru með herbergi sem verða ekki nýtt að láta hótelið vita sem fyrst, eins ef fólk hefur tök á að tvímenna í herbergi væri það frábært!
Einnig er laus gisting í Holti, á Hernum á Ísafirði, Einarshúsi á Bolungarvík, Hrafnseyri og einhverjar íbúðir sem Jóna Símonía hefur deilt inn í Facebook hópinn.
Ekki hika við að hafa samband ef það er eitthvað sem þið eruð að velta fyrir ykkur!
Hlökkum til að sjá ykkur!