Samtök um söguferðaþjónustu (SSF), í samstarfi við Íslandsstofu og Félag íslenskra safna og safnamanna (FÍSOS), bjóða til málþings í Grósku, Bjarkargötu 1, föstudaginn 20. janúar kl. 9.30-12.00. Málþingið er öllum opið og er aðgangur ókeypis.
Dagskrá:
09.30 Ávarp
Ingvi Már Pálsson, skrifstofustjóri, Menningar- og viðskiptaráðuneytinu
09.45 Íslandsstofa og stafræn markaðssetning menningarferðaþjónustu
Ísak Kári Kárason, fagstjóri vefmála hjá Íslandsstofu
10.00 Framtíðin: upplifanir og ævintýri
Dagrún Ósk Jónsdóttir, þjóðfræðingur
10.20 Að móta áfangastað
Magnús Orri Marínarson Schram, framkvæmdastjóri Rauðukamba (Fjallaböðin)
10.40 Kaffihlé með veitingum
11.00 Hús íslenskunnar – nýr áfangastaður
Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar
11.20 Með söguna í vasanum; nýjar leiðir til miðlunar menningararfs
Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar
11.40 Ferðast um víddir tímans: minjar, landslag og ferðamenn
Birna Lárusdóttir, fornleifafræðingur
12.00 Málþingi slitið
Húsið opnar kl. 9.00
Boðið verður upp á léttar veitingar og er fólk því beðið að skrá sig á viðburðinn á slóðinni hér: https://www.islandsstofa.is/vidburdir/nyskopun-og-taekifaeri-i-soguferdathjonustu-a-islandi