Eins og glöggir félagar í FÍSOS hafa tekið eftir hefur dregist að senda út ný félagskort. Ástæðan fyrir því er sú að stjórn hefur ákveðið að kortin verði framvegis rafræn en færst hefur í vöxt að félagasamtök fari þá leið enda er það bæði umhverfisvænni og hagkvæmari kostur en gömlu plastkortin. Stjórn hefur undanfarið unnið að því að finna hentuga lausn á þessum málum og nú er farið að sjá fyrir endann á þeirri vinnu. Tekið skal fram að félagsmenn sem ekki geta nýtt sér rafræn félagskort munu fá annars konar staðfestingar á félagsaðild sinni. Þá geta nýir félagsmenn óskað eftir bráðabirgðastaðfestingu á félagsaðild sinni á meðan beðið er eftir nýju kortunum með því að senda póst á stjorn@safnmenn.is
Með kveðju og þökk fyrir þolinmæðina
Stjórn FÍSOS