FÍSOS sótti í safnasjóð styrk til að greina þær kynningarleiðir sem söfnum standa til boða og meta virkni þeirra með það að markmiði að söfn geti með markvissari hætti nýtt það fé sem ætlað er til kynningarmála. FÍSOS fór í samstarf við Íslandstofu um greiningu á efninu og vann Katarzyna Moi verkefnið. Félagsmenn fengu þessa greinagerð senda í pósti (okt. 2018) en hún er einnig aðgengileg á heimasíðu félagsins.
Næst er að læra að beita þeim aðferðum sem koma fram í greinagerðinni og efnir því FÍSOS til þessa dagsnámskeiðs í samstarfi við Hugsmiðjuna:
Samfélagsmiðlun sem virkar
Náðu forskoti með mikilli útbreiðslu og lægri kostnaði en með hefðbundinni markaðssetningu. Samfélagsmiðlarnir eru staðirnir – þar er fólkið, þar eru tækifærin!
Markhópur: Félagsmenn FÍSOS
Staðsetning: Hugsmiðjan – Snorrabraut 56, 101 Reykjavík
Tími og dagsetning: Miðvikudaginn 18. desember 2019 kl.9:30-16:00
Athugið! Þetta er dagsnámskeið og því mikilvægt að nemendur geta tekið þátt allan daginn – t.a.m. ekki bara fyrir eða eftir hádegi.
Leiðbeinandi: Námskeiðið er á vegum Hugsmiðjunnar og er kennari Margeir S. Ingólfsson.
Síðasti dagur skráningar – föstudagur 13. desember 2019
Hámarksfjöldi: 25 þátttakendur
Kostnaður: ENGINN fyrir FÍSOS félaga ( alla jafna kostar námskeiði 49.900 kr.)
Skráning hér: https://forms.gle/bYMezSYkHbJgCJc2A
Frekari upplýsingar um námskeiðið:
Greinagerðin:
FÍSOS – PRESENCE ONLINE
Söfn á Íslandi – Markaðsgreining og aðgerðaáætlun til að auka sýnileika á netinu.