Stjórn FÍSOS – Félags íslenskra safna og safnmanna boðar hér með til aðalfundar miðvikudaginn 27. september 2017 kl. 13.30 á Kaffi Rauðku, Gránugötu 19, Siglufirði.
Dagskrá aðalfundar:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar um störf félagsins.
3. Reikningar félagsins lagðir fram.
4. Lagabreytingar.
5. Ákveðið árgjald félagsmanna og stofnana.
6. Kosning í stjórn og aðrar trúnaðarstöður
8. Farskóli 2018.
9. Heiðursfélagar.
10. Önnur mál.
Stjórn FÍSOS leggur til breytingar á lögum félagsins sem fylgja hér með í viðhengi. Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér vel fyrirhugaðar breytingar.
Tillögur að lagabreytingum á lögum FÍSOS
Óskað er eftir framboðum til stjórnar í stöðu varaformanns, gjaldkera, ritara og varamanns. Áhugasamir geta lýst yfir framboði með því að senda tölvupóst á stjorn@safnmenn.is eða lýst yfir framboði á aðalfundi. Kjörgengi hafa þeir félagsmenn sem greitt hafa árgjald félagsins fyrir aðalfund eða eru heiðursfélagar.