Í tilefni af safnadeginum 18. maí býður safnið gestum uppá á hádegisleiðsögn. Síðdegis verður Beitningaskúrinn opinn þar sem sýnd verða handbrögðin við
beitingu.
Hádegisleiðsögnin í umsjón Þorsteins Tryggva Mássonar héraðsskjalavarðar
verður í Húsinu á sýninguna Á því herrans ári og hefst kl. 12.00. Á
sýningunni sem er samstarfsverkefni Héraðsskjalasafns Árnesinga og
Byggðasafns Árnesinga er varpað nýju ljósi á myntsafn Helga Ívarssonar frá
Hólum. Aðgangur ókeypis á leiðsögn.
Í Beitingaskúrnum við sjógarðinn verður beitt í bala frá 17.00 – 19.00. Þá
gefst gestum bæði færi á að sjá vana menn þá Siggeir Ingólfsson og Björn
Inga Bjarnason að störfum sem og skoða sjálfan skúrinn. Léttar veitingar í
boð og aðgangur ókeypis.
Heimasíða Byggðasafns Árnesinga