• 05/05/2017

    Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi
    Saga og samtími Íslands hefur einkennst af þverþjóðlegum tengslum rétt eins og annarra landa í heiminum. Ísland hefur þannig verið vettvangur hreyfanleika fólks og hugmynda í gegnum aldir. Þetta er mikilvægt að undirstrika á tímum þegar dagleg umræða byggir oft á þeirri hugmynd að fyrr á öldum hafi ólíkir hlutar heimsins verið einangraðir hverjir frá öðrum. Fordómar í íslensku samfélagi eru ekki heldur nýir því að Íslendingar hafa um aldir verið mótaðir af hnattrænum hugmyndum um kynþáttafordóma.
    Sunnudaginn 21. maí kl. 14 mun Kristín Loftsdóttir prófessor í mannfræði vera með leiðsögn um sýninguna Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi.
    Kristín mun leggja áherslu á kynþáttafordóma og þjóðarímynd í leiðsögninni.
    Sýningin er unnin í samstarfi við Háskóla Íslands og stendur yfir til 29.10.2017.
    Heimasíða Þjóðminjasafns Íslands
    Ísland-í-umheiminum-23