Menningarhúsin í Kópavogi bjóða gesti velkomna í Gerðarsafn og Náttúrufræðistofu Kópavogs á alþjóðlega safnadaginn 18. maí. Í Gerðarsafni verður opin útskriftarsýning meistaranema í myndlist og hönnun við Listaháskóla Íslands. Á Náttúrufræðistofu er fjölbreytt úrval náttúrugripa til sýnis en áhersla er á jarðfræði og dýr á Íslandi.
Opið frá 11-17.
Upplýsingar um menningarhúsin í Kópavogi