Yfirskrift alþjóðlega safnadagsins, 18. maí, er söfn og umdeild saga:
Að segja það sem ekki má segja í söfnum
Í tilefni af alþjóðlega safnadeginum 2017, og yfirskrift hans, býður
Listasafn Íslands gestum sínum að njóta frásagnar eins fremsta
listamanns landsins; STEINU (Steina Briem Bjarnadóttir Vasulka, f.1940),
um vídeóinnsetningu hennar ELDRÚNIR sem sýnd er í safninu um þessar
mundir.
Hér er hægt að lesa um Eldrúnir
Fimmtudaginn 18. maí kl.16:30 munu Hildur og Kristín Bjarnadætur, systur
Steinu og Kristín Scheving, deildarstjóri Vasulka-stofu ræða við
Steinu um verk hennar og um Vasulka-stofu; sérdeild innan Listasafns
Íslands, sem stofnuð var árið 2014 og er starfrækt sem sýninga- og
rannsóknarými á neðri hæð safnbyggingar Listasafns Íslands.
Auk þess að bjóða gestum til samræðu við Steinu um list hennar vill
Listasafn Íslands beina athygli gesta sérstaklega að verki WOODY
VASULKA, eiginmanns og samverkamanns Steinu, sem sýnt er í Vasulka-stofu
um þessar mundir og ber heitið ART OF MEMORY.
Vídeóverkið Art of Memory frá árinu 1987 á í beinni samræðu við
yfirskrift og áherslu alþjóðlega safnadagsins en í því staðsetur
listamaðurinn sálrænt áfall sögu 20. aldar í kvikmyndum af
ofbeldisverkum, þar á meðal eru spænska borgarastyrjöldin, rússneska
byltingin, seinni heimsstyrjöldin og tilkoma kjarnorkusprengjunnar. Undir
yfirgnæfandi vængjaðri veru samviskunnar virðast sagan og minningin
grátt leiknar af sögunni og myndrænum minningum. Í hrífandi
sambræðslu stríðstóla og véla sögunnar og fjölmiðla tekst Vasulka
að byggja upp napurt og að endingu átakanlega harmrænt
minningaleikhús.
Art of Memory er mikilfenglegt verk, frumleg og þroskuð framsetning á
rannsókn Vasulka á merkingu skrásettra mynda. Með því að byggja upp
reimleikaleikhús minninga úr sjónarspili kvikmynda og rafrænna mynda,
fellir Vasulka saman og umbreytir sameiginlegu minni og sögu í torræðu
rými og tíma. Hið stórfenglega landslag suðvesturríkja Bandaríkjanna
er goðsagnakenndur vettvangur sem hann greypir í fréttakvikmyndir úr
stríðinu — draugalegar myndir sem verða að sveigjanlegum,
skúlptúrískum formum fyrir tilstilli stöðugra rafrænna ummyndana.
Opið er í safninu frá 10 – 17
Frítt inn í tilefni alþjóðlega safnadagsins.