• 04/05/2017

    DSC_5965Hvað leynist á bakvið  tjöldin í Hönnunarsafninu?
    Í tilefni af alþjóðlega safnadeginum  verður boðið upp á leiðsagnir  sunnudaginn 21. maí þar sem skyggnst verður bak við tjöldin í Hönnunarsafninu.
    Gestir fá tækifæri til að ganga um mismunandi vinnurými safnsins  og heyra um það  fjölbreytta starf sem þar á sér stað.
    Í safneign Hönnunarsafnsins eru rúmlega 1300 gripir og mikill meirihluti þeirra eru húsgögn.  Mikið starf fer fram í tengslum við safneign safnsins jafnvel þó ekki sé verið að setja upp sýningar.
    Í leiðsögn um varðveislurýmin gefst einstakt tækifæri til að skyggnast á bak við tjöldin og kynnast gripum og starfi eina safns landsins sem safnar einvörðungu hönnun og nytjalist.
    Takmarka þarf fjölda gesta í  hverri leiðsögn og er miðað við 10 gesti í hóp. Boðið verður upp á  tvær leiðsagnir sem taka  um hálftíma hver: Kl. 14:00 og 15:30
    Ókeypis aðgangur er í  safnið þennan dag.
    Heimasíða Hönnunarsafns Íslands