FÍSOS, félag íslenskra safna og safnmanna í samstarfi við Íslandsdeild ICOM og safnafræði HÍ stendur fyrir málþingi 15. maí. Meginmarkmið þingsins er að veita upplýsingar og skapa málefnalegan vettvang til þess að ræða mál sem söfn þurfa að fá skýr svör við.
13:00 Allt í kerfi? Um flökkulíf safna og fasta búsetu. Bergsveinn Þórsson formaður FÍSOS
13:30 Tilfærsla safna innan mennta og -menningarmála ráðuneytis. Ragnheiður H. Þórarinsdóttir deildarstjóri skrifstofu menningarmála, mennta og- menningarmálaráðuneyti
14:00 Kaffihlé
14:15 Staða þekkingaruppbyggingar og rannsókna. Sigurjón B. Hafsteinsson dósent við Háskóla Íslands
14:50 Boðleiðir styrkveitinga. Katrín Jakobsdóttir þingmaður vinstri grænna og fyrrverandi menntamálaráðherra
15:30 Kaffihlé
15:45 Pallborðsumræður fyrirlesarar sitja í pallborði ásamt Margréti Hallgrímsdóttur, skrifstofustjóra skrifstofu menningararfs hjá forsætisráðuneytinu.
17:00 Málþingi slitið
Málþingið verður tekið upp í hljóði og mynd