• 03/11/2026

    Ályktun stjórnar FÍSOS – Félags íslenskra safna og safnafólks um uppsagnir og niðurskurð á söfnum

    Félag íslenskra safna og safnafólks harmar þær uppsagnir sem átt hafa sér stað undanfarið á söfnum og öðrum menningarstofnunum. Félagið hvetur eigendur safna til að láta ekki skammtímasjónarmið ráða för við ákvarðanatöku um hagræðingu í rekstri heldur standa vörð um kjarnastarfsemi safna sem allt annað faglegt safnastarf byggir á.

    Með því að veikja getu safna til að sinna rannsóknum, skráningu og varðveislumálum er verið að veikja alla aðra starfsemi þeirra. Mannauðurinn er mikilvægasta auðlind safnanna. Í stóru myndinni í hagræðingu sveitarfélaga skipta uppsagnir örfárra safnastarfsmanna litlu máli en þær geta haft miklar, langvarandi og jafnvel varanlegar afleiðingar á starfsemi þeirra safna sem um ræðir. Safnastarf hvílir á fimm stoðum; söfnun, varðveislu, skráningu, rannsóknum og miðlun. Hver stoð hvílir á hinum fjórum og stendur ekki ein og sér. Án rannsókna og vinnu við safnkost verður sýningagerð, viðburðadagskrá og safnfræðsla ekki til.

    Söfn hafa ríkulegt samfélagslegt hlutverk og safnastörf eru í eðli sínu einnig þjónustustörf.  Þjónustustörf við skóla á öllum skólastigum, frá leikskólum til háskóla, símenntunarmiðstöðvar, félagasamtök, stofnanir, fræðasamfélagið og almenning allan. Söfn spila mikilvægt hlutverk í virðiskeðju ferðaþjónustu. Samkvæmt nýjustu könnun Ferðamálastofu sóttu 31% erlendra ferðamanna söfn árið 2025. Það sýnir að söfn eru raunverulegur hluti af upplifun ferðamanna á Íslandi og skapa bæði störf og tekjur í ferðaþjónustu.

    Stjórn FÍSOS telur mikilvægt að árétta að samkvæmt skilgreiningu Alþjóðaráðs safna, ICOM, sem söfn hér á landi starfa  eftir, er kveðið á um að söfn séu stofnanir sem taki virkan þátt í samfélaginu: „Safn er varanleg stofnun, ekki rekin í hagnaðarskyni, sem þjónar samfélaginu með rannsóknum, söfnun, varðveislu, túlkun og miðlun á áþreifanlegri og óáþreifanlegri arfleifð. Söfn eru opin almenningi, aðgengileg og inngildandi og stuðla með því að fjölbreytileika og sjálfbærni. Í starfi sínu og virkum samskiptum við ólíka samfélagshópa hafa þau fagmennsku og siðferðileg gildi að leiðarljósi og bjóða upp á margvíslegar upplifanir í þágu menntunar, ánægju, ígrundunar og þekkingarauka.“

    Langflest söfn á Íslandi eru viðurkennd söfn sem starfa samkvæmt safnalögum og eru undir eftirliti Safnaráðs. Með það að markmiði að varðveita og miðla menningararfinum til komandi kynslóða, er framtíðin safnamönnum hugleikin. Því mega ákvarðanir um rekstur safna og hlutverk þeirra ekki vera teknar með skammsýni að leiðarljósi.

    Að endingu hvetur FÍSOS Reykjavíkurborg til þess að draga til baka nýlegar uppsagnir á söfnum borgarinnar og standa vörð um rannsóknir og miðlun á sögu Reykjavíkur.