• 17/09/2026

    Aðalfundur FÍSOS 7. október 2026

    Stjórn FÍSOS – Félags íslenskra safna og safnafólks boðar hér með til aðalfundar félagsins miðvikudaginn 7. október 2026 kl. 12:00 í Edinborgarhúsinu á Ísafirði.

    Dagskrá aðalfundar:
    1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
    2. Skýrsla formanns um störf félagsins.
    3. Ársreikningur félagsins.
    4. Umræður um ársskýrslu og ársreikning og afgreiðsla reikninga.
    5. Lagabreytingar
    6. Kosning í stjórn og aðrar trúnaðarstöður.
      1. Kosning fimm manna stjórnar til tveggja ára í senn, formaður og meðstjórnandi annað árið en varaformaður, gjaldkeri og ritari hitt árið.
      2. Kosning tveggja varamanna til tveggja ára, eins varamanns annað árið en annars hitt árið.
      3. Kosning skoðunarmanns reikninga til tveggja ára, eins skoðunarmanns annað árið og annars skoðunarmanns hitt árið.
      4. Kosning farskólastjóra til eins árs.
    7. Ákvörðun ársgjalds félagsmanna og stofnana.
    8. Önnur mál.


    Kosning stjórnar

    Samkvæmt reglum félagsins skal kjósa í stjórn til tveggja ára í senn; formaður, meðstjórnandi og varamaður annað árið en varaformaður, gjaldkeri, ritari og varamaður hitt árið.

    Að þessu sinni er óskað er eftir framboðum í stöður formanns, meðstjórnanda og varamanns. Þá er einnig óskað eftir framboði til skoðunarmanns reikninga.

    Áhugasöm geta lýst yfir framboði með því að senda tölvupóst á stjorn@safnmenn.is og þurfa framboð að hafa borist sjö dögum fyrir aðalfund.

    Kjörgengi hafa þeir félagsmenn sem greitt hafa árgjald félagsins fyrir aðalfund eða eru heiðursfélagar.

    Vægi atkvæða á fundum félagsins er einn félagsmaður, eitt atkvæði og ein stofnun, eitt atkvæði. Fer forsvarsmaður stofnunar með atkvæði hennar á fundum félagsins eða fulltrúi í umboði hans.

    Bestu kveðjur frá stjórn FÍSOS,

    Í stjórn félagsins 2025-2026 sitja:

    Formaður: Kristín Halla Baldvinsdóttir, Þjóðminjasafn Íslands
    Varaformaður: Cecilie Cedet Gaihede, Gerðarsafn
    Gjaldkeri: Hanna Rósa Sveinsdóttir, Minjasafnið á Akureyri
    Ritari: Þorvaldur Gröndal, Borgarsögusafn Reykjavíkur
    Meðstjórnandi: Ingibjörg Hannesdóttir, Listasafni Íslands
    Varamenn: Sigurlaugur Ingólfsson, Borgarsögusafn Reykjavíkur og Helga Aradóttir, Náttúruminjasafn Íslands