Núna í aðdraganda sveitastjórnarkosninga 2026 var öllum framboðum sendur tölvupóstur þar sem óskað var eftir svari við spurningunni, hver er ykkar stefna í menningar- og safnamálum. Bréfið má sjá hér: Bréf til frambjóðenda til sveitastjórna 2026.
Sendir voru í kringum 150 póstar, en viðbrögðin voru fremur dræm. Hafa verður þó í huga að hugsanlegt er að pósturinn hafi í einhverjum tilfellum ekki ratað á réttan stað eða endað í ruslpósti. Hér má sjá svör þeirra lista sem hafa svarað póstinum: Svör lista við spurningu um stefnu í menningar- og safnamálum.
Ef ykkur langar að senda póstinn aftur á framboð í sveitarfélaginu ykkar sem hefur ekki svarað megið þið gjarnan gera það og getið svo áframsent póstinn eða haft felagislenskrasafna@gmail.com í cc svo hægt sé að bæta þeirra svörum í skjalið.
Við bendum á að Bandalag íslenskra listamanna hefur einnig sent framboðum já og nei spurningar um stefnu þeirra í menningarmálum og er hægt að nálgast svörin á heimasíðu þeirra, sjá hér.
Kær kveðja,
Dagrún Ósk, fyrir hönd Hagsmunahóps FÍSOS