Alþjóðlega safnadeginum er fagnað þann 18. maí ár hvert. Yfirskrift dagsins 2026 er: Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi
Sem vettvangur fræðslu og þekkingar gegna söfn mikilvægu hlutverki í að efla friðsamleg samskipti og gagnkvæma virðingu. Í tilefni af Alþjóðlega safnadeginum í maí 2026 er ykkur boðið að taka þátt í að varpa ljósi á yfirskrift ársins Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi. Yfirskriftin mun jafnframt setja sinn svip á hátíðarhöld í tilefni af 80 ára afmæli ICOM á árinu.
Söfn eru opin rými sem njóta trausts almennings, þar sem gestir eiga þess kost að kynnast sögum, gripum og hvert öðru. Á tímum sundrungar, skautunar og ójafns aðgengis að þekkingu og menningu gegna söfn lykilhlutverki í að endurbyggja tengsl þvert á kynslóðir, samfélagshópa og landamæri. Þannig stuðla þau að samtali, skilningi, þátttöku og friði innan samfélaga og á heimsvísu.
Yfirskriftin Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi undirstrikar möguleika safna til að brúa bilið milli ólíkra menningarheima, samfélagshópa og landssvæða. Markmið safna er ekki að setja alla undir sama hatt heldur skapa rými þar sem skilningur og virðing eru höfð í hávegum. Með því að varðveita menningararf og minni, efla fræðslu og ígrundun, auk þess að bjóða upp á opið og aðgengilegt rými þar sem ólíkar raddir fá að heyrast, stuðla söfn að fjölbreytileika og sjálfbærni.
Við hvetjum öll þau sem tilheyra hinu alþjóðlega safnasamfélagi til að taka þátt í Safnadeginum 2026 og vinna með yfirskriftina á þann hátt að hún höfði til nærsamfélagsins. Svo sem með verkefnum sem byggja á þátttöku, samstarfi ólíkra aðila og auknu aðgengi, í því skyni að stuðla að samkennd og trausti í samfélaginu. Við hlökkum til að fagna Alþjóðlega safnadeginum með ykkur og ykkar söfnum.