• 23/04/2025
    Rannsóknasetur skapandi greina (RSG) stendur að ráðstefnunni Menningarauðlind ferðaþjónustunnar, ráðstefnu um menningarferðaþjónustu og nýja ferðamálastefnu til 2030 þann 14. maí í Hofi, Akureyri. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF) og hlaut verkefnið styrk úr Hvata, sjóði menningar- og viðskiptaráðuneytisins. Þá er ráðstefnan meðal annars haldin í samstarfi við FÍSOS.
    Markmiðið með ráðstefnunni er að skoða samspil og hlutverk menningar í ferðaþjónustu. Ennfremur er ráðstefnunni ætlað að skoða hvernig efla má gagnasöfn og rannsóknavirkni sem stuðlað getur að þróun og framförum á sviði menningarferðaþjónustu.
    Á ráðstefnunni gefst gestum kostur á að heyra margvíslegar dæmisögur um vel heppnaða menningarferðaþjónustu og fræðileg erindi um rannsóknir á þessu sviði. Allir þátttakendur geta tekið þátt í hópavinnu um fjögur þemu sem verður nýtt í að þróa rannsóknastefnu RSG á sviði menningarferðaþjónustu. Þemun eru: Samstarf og klasahugsun, Markaðs- og kynningarmál, Vöruþróun og fjárfestingar, Gagnasöfn og rannsóknaáætlun.
    Viðburðinum verður streymt en gert verður hlé á streyminu meðan á hópavinnu stendur.
    Ráðstefnustjóri er Sigríður Örvarsdóttir, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri
    Dagskrá
    09:00 Ávarp – fulltrúi menningarmálaráðherra
    09:10 Menningarferðaþjónusta í ferðamálastefnu – Svanhildur Konráðsdóttir, formaður starfshóps um menningarferðaþjónustu í mótun ferðamálastefnu og forstjóri Hörpu
    09:20 Dæmisögur af menningarferðaþjónustu
    Landnámssetrið í Borgarnesi – Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, forstöðumaður Landnámssetursins
    Galdrasýning á Ströndum – Jón Jónsson, þjóðfræðingur
    1238 Baráttan um Ísland – Freyja Rut Emilsdóttir, framkvæmdastjóri
    Bræðslan: Geta viðburðir styrkt brothættar byggðir? – Áskell Heiðar Ásgeirsson, lektor við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum
    Þórbergssetur – Þorbjörg Arnórsdóttir, forstöðumaður Þórbergsseturs
    Lava Show – Ragnhildur Ágústsdóttir LadyLava, stofnandi LavaShow
    10:30 Kaffihlé
    10:45 Áfangastaðir – sögur, söfn og frumkvöðlastarf
    Rannsóknir og þróunarverkefni
    Vistkerfi menningararfs og ferðaþjónustu: Frásagnir og skapandi ferli til eflingar samfélaga og byggða – Katrín Anna Lund, prófessor í ferðamálafræði við Háskóla Íslands
    Sameiginleg hagsmunamál safna og ferðaþjónustu á Íslandi – Guðrún Dröfn Whitehead, lektor í safnafræði
    Óáþreifanlegur menningararfur: Þróun og sjálfbærni – Ingibjörg Benediktsdóttir, verkefnastjóri hjá Þekkingarneti Þingeyinga
    Túrismi, trauma og tækni til miðlunar – Sigurjón Hafsteinsson, prófessor við Háskóla Íslands
    11:45 Stuttar umræður
    12:00 Hádegisverður
    13:00 Hópavinna
    Samstarf og klasahugsun
    Markaðs- og kynningarmál
    Vöruþróun og fjárfestingar
    Gagnasöfn og rannsóknaáætlun
    14:30 Kaffihlé
    14:50 Kynningar og umræður á hópastarfi
    15:50 Lokaorð – fulltrúi atvinnuvegaráðherra
    16:00 Ráðstefnu slitið
    Vinsamlegast skráið mætingu ýmist á staðinn eða í streymi hér: https://www.rssg.is/audlind. Skráningu lýkur kl. 12 mánudaginn 5. maí.