Nýjasta tölublað Kvists er komið út! Þeir félagar sem greitt hafa félagsgjöld fá eintak af blaðinu. Blaðinu var dreift á Farskóla FÍSOS 2019 á Patreksfirði og nú mánudaginn 14. október sl. var blaðið sent með bréfpósti til annarra félagsmanna og annarra áskrifanda. Þá verða eintök af blaðinu til sölu í Bóksölu stúdenda á Háskólatorgi.
Efst á baugi í sjötta tölublaðinu eru söfn og umhverfi:
Stjórn FÍSOS færir ritstjórn Kvists, Ingu Láru Baldvinsdóttur, ritstjóra, Sigrúnu Kristjánsdóttur, Ágústu Kristófersdóttur, Sigurjóni Baldri Hafsteinssyni,og Ingunni Jónsdóttur, bestu þakkir fyrir þeirra ómetanlega framlag við að setja saman fróðlegt, faglegt og skemmtilegt blað sem dregur fram það mikla starf og ábyrgð sem safnastarfið er.
Ef einhver dráttur verður á að blaðið berist félagsmönnum í hendum er þeim bent á að hafa samband við stjórn félagsins, stjorn hjá safnmenn.is