• 05/05/2017

    Í tilefni af safnadeginum 18. maí býður safnið gestum uppá á hádegisleiðsögn. Síðdegis verður Beitningaskúrinn opinn þar sem sýnd verða handbrögðin við
    beitingu.
    Hádegisleiðsögnin í umsjón Þorsteins Tryggva Mássonar héraðsskjalavarðar
    verður í Húsinu á sýninguna Á því herrans ári  og hefst kl. 12.00. Á
    sýningunni sem er samstarfsverkefni Héraðsskjalasafns Árnesinga og
    Byggðasafns Árnesinga er varpað nýju ljósi á myntsafn Helga Ívarssonar frá
    Hólum. Aðgangur ókeypis á leiðsögn.
    Í Beitingaskúrnum við sjógarðinn verður beitt í bala frá 17.00 – 19.00. Þá
    gefst gestum bæði færi á að sjá vana menn þá Siggeir Ingólfsson og Björn
    Inga  Bjarnason að störfum sem og skoða sjálfan skúrinn. Léttar veitingar  í
    boð og aðgangur ókeypis.
    Heimasíða Byggðasafns Árnesinga
    OLYMPUS DIGITAL CAMERA