Í tilefni Alþjóðlega safnadagsins þann 18. maí bjóðum við upp á örsýningu á heimasíðu safnsins. Þú getur skoðað hana þegar þér best hentar og svo oft sem þú óskar.
Sýningin er tengd yfirskrift Safnadagsins sem er Söfn og menningarlandslag . Við vonum að hún verði lesendum síðunnar til nokkurs gagns.
Hver veit nema við bjóðum upp á stutta gönguferð með leiðsögn á Hvanneyri til þess að halda enn betur upp á þetta viðfangsefni. Til dæmis í júní eða júlí þegar sumarið er komið fyrir alvöru.
Hvanneyri. Borgarfirði. S: 844 7740 www.landbunadarsafn.is bjarnig@lbhi.is