• 17/05/2016

    Í tilefni Alþjóðlega safnadagsins 18. maí er ókeypis aðgangur í Norska húsið – Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla. Opið frá kl: 11 – 18.

    Norska húsið er fyrsta tvílyfta íbúðarhús á Íslandi. Það var byggt úr tilsniðnum viði frá Noregi árið 1832 og er því rúmlega 180 ára gamalt. Í safninu er fastasýning á heimili Árna Ó. Thorlacius (1802–1891) og Önnu Magdalenu Steenback (1807–1894) eins og talið er að það hafi verið á seinni hluta 19. aldar. Í risi er opin safngeymsla með munum frá öllu Snæfellsnesi. Á fyrstu hæð eru breytilegar sýningar í Mjólkurstofu og Eldhúsi sem tengjast listum, menningu og/eða sögu svæðisins og safnbúð í krambúðarstíl.
    Hafnargötu 5, 340 Stykkishólmi. S: S:433 8114 www.norskahusid.is   www.facebook.com/NORSKAhusid.BSH
    Nánari upplýsingar Hjördís Pálsdóttir, safnstjóri S: 865 4516 hjordis@norskahusid.is
    norska húsið