• 22/03/2015

    Þann 18. mars 2015 voru Marta Guðrún Jóhannesdóttir safnafræðingur, Guðný Dóra Gestsdóttir forstöðumaður Gljúfrasteins og Þórunn Elísabet Sveinsdóttir myndlistarmaður og búningahönnuður, fyrirlesararar að þessu sinni.

    Margar hliðar, mörg sjónarhorn: Tekist á við ævi og verk Auðar Sveinsdóttur á Gljúfrasteini 
    Sýningarteymið fjallaði um gerð sýningarinnar Auður á Gljúfrasteini – Fín frú, sendill og allt þar á milli, sem sett var upp í Listasal Mosfellsbæjar haustið 2014. Rætt var um aðdragandann að sýningunni, aðferðafræðina sem hún byggir á og hönnun hennar.
    Einnig verður sagt frá viðtökum sýningarinnar og tilraun þeirra sem að henni standa til þess að laða fram ólíkar frásagnir um Auði Sveinsdóttur á Gljúfrasteini.
    Glærur. Gljúfrasteinn