• 22/11/2014

     

    Þann 19. nóvember var Ásta Olga Magnúsdóttir verkefnastjóri hjá Gagarín með hádegisfyrirlestur FÍSOS.  Fjallaði hún um hvernig unnið er með gagnvirkni og áþreifanleika til að gera upplifun gesta ríkari á sýningum og söfnum.
    Með því að fá vera þátttakandi á fjölbreytilegan hátt í sýningum sem þó hafa skýran söguþráð og sýn er hægt að takast á loft í ferðum okkar um heima vísindanna, sagnfræðinnar, menningarinnar, listarinnar.
    Gagarín hefur síðustu ár unnið að fjölmörgum sýningum og margmiðlunarlausnum fyrir söfn bæði hér á landi og erlendis og í fyrirlestrinum verða tekin fyrir ný sýningaratriði sem Gagarín gerði fyrir Mannréttindasafnið í Winnipeg sem og fyrir Eldheimasýninguna í Vestmannaeyjum, sjá kynningarmyndband Gagarín á Eldheimum hér.
    Glærur. Ásta Olga