Þann 19. nóvember var Ásta Olga Magnúsdóttir verkefnastjóri hjá Gagarín með hádegisfyrirlestur FÍSOS. Fjallaði hún um hvernig unnið er með gagnvirkni og áþreifanleika til að gera upplifun gesta ríkari á sýningum og söfnum.
Með því að fá vera þátttakandi á fjölbreytilegan hátt í sýningum sem þó hafa skýran söguþráð og sýn er hægt að takast á loft í ferðum okkar um heima vísindanna, sagnfræðinnar, menningarinnar, listarinnar.
Gagarín hefur síðustu ár unnið að fjölmörgum sýningum og margmiðlunarlausnum fyrir söfn bæði hér á landi og erlendis og í fyrirlestrinum verða tekin fyrir ný sýningaratriði sem Gagarín gerði fyrir Mannréttindasafnið í Winnipeg sem og fyrir Eldheimasýninguna í Vestmannaeyjum, sjá kynningarmyndband Gagarín á Eldheimum hér.
Glærur. Ásta Olga