• 19/06/2026

    Það er búið að opna fyrir skráningu á Farskóla FÍSOS 2026. Skráningarformið má finna hér.

    Við bjóðum ykkur velkomin á næsta Farskóla FÍSOS sem haldinn verður á Ísafirði dagana 7.-9. október 2026. Venju samkvæmt er dagskrá Farskólans blanda af fyrirlestrum, málstofum og skoðunarferð um svæðið. Árshátíð FÍSOS verður haldin fimmtudaginn 8. október.

    Við biðjum ykkur að skrá ykkur á Farskólann með því að fylla út meðfylgjandi skráningarform. Jafnframt biðjum við ykkur um að velja ykkur málstofur. Hér má sjá nánari lýsingu á málstofunum.

    Málstofur verða þrisvar sinnum á dagskrá og hægt er að velja úr fimm til sex málstofum í hvert sinni. Við biðjum ykkur um að velja alltaf eina málstofu og eina til vara.

    Farskólagjöld eru 36.000 kr. fyrir félagsmenn í FÍSOS en 54.000 kr. fyrir aðra og hljóta félagsmenn forgang í farskóla. Athugið að breyting verður á í ár og farskólagjald verður innheimt fyrir farskóla. Reikningar verða sendir út í byrjun september og eindagi 15. september.