Alþjóðlegi safnadagurinn 2025: Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum
Þann 18. maí verður Alþjóðlegi safnadagurinn 2025 haldinn hátíðlegur undir yfirskriftinni Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum.
Í heimi sem tekur örum breytingum gegna söfn lykilhlutverki sem stofnanir sem efla þollyndi, nýsköpun og inngildingu. Þau eru lifandi vettvangur félagslegrar framþróunar og stuðla jafnframt að sjálfbærni á heimsvísu. Þá gegna söfn veigamiklu hlutverki í að styðja við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna en í ár beinist athyglin sérstaklega að eftirfarandi markmiðum:
Yfirskrift ársins tengist einnig allsherjarþingi ICOM sem verður haldið í Dúbaí í nóvember 2025. Á þessari alþjóðlegu ráðstefnu verður áfram fjallað um hvernig söfn geta aðlagast, þróast og verið leiðandi samfélagsafl á umbrotatímum.
Þann 18. maí hvetjum við því menningarstofnanir, stefnumótandi aðila og samfélög heimsins til að sameinast um að viðurkenna og virkja umbótakraft safna. Takið þátt í hreyfingunni og fögnum því saman hvernig söfn móta framtíð sem einkennist af inngildingu, nýsköpun og sjálfbærni.