Warning: assert() has been disabled for security reasons in /var/www/virtual/safnmenn.is/htdocs/wp-includes/sodium_compat/autoload.php on line 67
Farskóli 2025 – FÍSOS
Farskóli íslenskra safna og safnafólks verður haldinn 1.-3. október 2025 í Hótel Selfoss. Farskólastjórn hefur tekið til starfa og er dagskrá í mótun. Dagskráin verður með hefðbundnum hætti, með fyrirlestrum, málstofum, skoðunarferðum, aðalfundi FÍSOS og glæsilegri árshátíð.
Hver og einn sér um að útvega sér gistingu. Hana er nú þegar hægt að bóka á Hótel Selfoss, sími 480 2500 eða info@hotelselfoss.is og gefa upp bókunarnúmer 61381296. Gisting er möguleg á fleiri stöðum, t.d. SouthCoast Hotel, Bella Hotel, Hostel Selfoss, Gesthúsum og víðar í nágrenni Selfoss.
Í farskólastjórn sitja Lýður Pálsson farskólastjóri, Kristín Scheving, Sigurlaugur Ingólfsson og Helga Aradóttir.
Hér má finna dagskrá farskólans 2025:

Miðvikudagur 1. október á Hótel Selfossi

9:45-10:15 Afhending gagna/skráning

10:15 Setning farskólans

10:30-10:55 Can practicing art heal society disorders by reconnecting our minds with our bodies? –  Thomasine Giesecke, listamaður og umsjónarmaður fræðslu hjá Musée D´Orsay og Louvre söfnum í París.

10:55-11:10  Kaffihlé, nýliðar og mentorar hittast

11:10 –  11:35 Nýr Sarpur: Staðan núna – Vala Gunnarsdóttir fagstjóri Sarps.

11:35- 12 Zetcom og Sarpur – Marcell Zemp,Zetcom

12:00 Aðalfundur FÍSOS – hádegismatur

13:00-13:30 Hvar stendur þitt safn? Tölur úr safnastarfi 2016-2023 – Þóra Björk Ólafsdóttir

14:00 – 18:00  Skoðunarferð um Suðurland: Ásgrímsleiðin og söfn á svæðinu heimsótt,  leiðsögumaður: Hannes Stefánsson

18:00-18:45 Móttaka  á Hersafninu við Selfossflugvöll. Léttar veitingar í boði Sveitarfélagsins Árborgar, ávarp Kjartan Björnsson forseti bæjarstjórnar.

Kvöldverður á eigin vegum (það er um 37 veitingastaði að velja á Selfossi) farskólabarinn verður í Risinu í nýja miðbænum.

21:00 Æsispennandi Pub quiz í Risinu (“Gamla” Mjólkurbú Flóamanna)

 

Fimmtudagurinn 2. október á Hótel Selfossi

9:00-9:45 Bergur Ebbi

9:45-10:00 Kaffihlé

10:00-10:45 Málstofur 1:

  • Áskoranir leiða af sér lausnir …
  • „Hjá barni á allt sem fyrir augu ber beina leið til hjartans“ (ÁJ)
  • Safnastarf á mörkum vísinda og skapandi greina
  • Áskoranir og úrlausnir við sýningargerð – Reynsla Náttúruminjasafns Íslands af gerð tveggja grunnsýninga

11:00 Stórskemmtilegur ratleikur um Selfoss – skipt í lið

12.15 – 12:55 Léttur hádegisverður

13:00-13:45 Málstofur 2

  • Varðveisla tímatengdra miðla
  • Sjónlýsing á Borgarsögusafni
  • Náttúruvernd á söfnum – samtenging og samlegðaráhrif listar og vísinda
  • Að segja/lesa/túlka sögu hinna

14:00-14:45 Málstofur 3

  • Þrívíddarskannar – Stafræn tækni í minjavernd
  • Sannleikur/áreiðanleiki og safnfræðsla
  • Listmeðferð og safnastarf – Sérhæfð nálgun fyrir fólk með Alzheimers sjúkdóm á byrjunarstigi
  • Úr torfbæjum inn í tækniöld

15:00-15:45 Málstofur 4

  • Safnastarf í ferðaþjónustu
  • Perlur eða píp
  • Þróunarverkefni í fræðslustarfi
  • Listmeðferð og safnastarf – Sérhæfð nálgun fyrir fólk með Alzheimers sjúkdóm á byrjunarstigi – framhald

16:00-19:00 Frjáls tími

19:00 Árshátíð í aðalsal Hótel Selfoss

  • fordrykkur kl 19:00
  • borðhald hefst kl 19:30
  • Jóhann Alfreð Kristinsson verður veislustjóri
  • Atli Viðar þeytir skífum og heldur uppi stuðinu

 

Föstudagur 

9:00 Valkvæður tími fyrir fundarhöld hópa

10:00 Áreiðanleiki, trúverðugleik og sannindi! Kynning og umræða um nýjan Miðbæ Selfoss. “Hugmynd að veruleika” – Leó Árnason frá Sigtún þróunarfélagi  og “Um aðdráttarafl og fortíðleika í nýjum miðbæ Selfoss” – Vilhelmína Jónsdóttir mannfræðingur.

12:00-12:55 léttur (standandi) hádegisverður í Tryggvaskála – Rödd brottflutta Selfyssingsins

13:00 Farskólaslit í Tryggvaskála

 

Hér má sjá frekari lýsingu á málstofunum: https://drive.google.com/file/d/1tMTNP8ik44pSuNm555dOcYbnKSRvN4n7/view

Hvenær?

01/10/2025 - 03/10/2025

Hvar?

Selfoss

Skráning