• 16/10/2024

    Út er komið safnablaðið Kvistur.

    Það er gaman að segja frá því að Kvistur er 10 ára í ár, en fyrsta blaðið kom út árið 2014. Er það sérlega skemmtilegur áfangi enda blaðið mikilvægur hluti af safnastarfi í landinu og þess jafnan beðið með mikilli eftirvæntingu. Efnistökin eru líkt og undanfarin ár fjölbreytt og er þar að finna áhugaverðar greinar þar sem má meðal annars fá innsýn inn í störf safnafólks, greinar sem byggja á lokaverkefnum nemenda í safnafræði, sýningarýni og frásagnir af ólíkum verkefnum safnafólks. Sérstök áhersla er einnig lögð á hamfarir, vá og viðbrögð.

    Ritstjóri blaðsins er Elfa Hlín Sigrúnar Pétursdóttir og í ritstjórn sitja Birna María Ásgeirsdóttir, Sigurjón Baldur Hafsteinsson, Þóra Sigurbjörnsdóttir og Þorgerður Þorleifsdóttir.

    Hægt er að kaupa Kvist í Bóksölu stúdenta, eða með því að hafa samband við ritstjórn.