Warning: assert() has been disabled for security reasons in /var/www/virtual/safnmenn.is/htdocs/wp-includes/sodium_compat/autoload.php on line 67
Farskóli – FÍSOS

Farskóli

Farskóli FÍSOS – fagráðstefna safnafólks

Farskóli FÍSOS er árleg ráðstefna fagfólks á íslenskum söfnum, skipulögð af Félagi íslenskra safna og safnmanna. Á farskóla er lögð áhersla á að fyrirlestrar, erindi og vinnustofur nýtist ráðstefnugestum í faglegu starfi sínu. Ráðstefnan er mikilvæg starfsfólki safna í starfsþróun og símenntun, skipulögð með það að markmiði að vera dýrmætur vettvangur fræðslu-, þekkingar- og tengslamyndunar.

Fyrirlesarar, sérfræðingar á sínu sviði, flytja erindi um rannsóknir og verkefni í safnastarfi. Málstofum er stýrt af sérfræðingum safna og alla jafna lögð áhersla á fjölbreytileika í erindum, málstofum og vinnustofum. Á nokkurra ára fresti er ráðstefnan haldin erlendis, og eru þá fengnir þarlendir sérfræðingar til að stýra málstofum. Málstofur fara þá fram á ólíkum söfnum, þar sem ráðstefnugestir fá einstakt tækifæri til að læra af erlendum kollegum og kynna sér starfsaðstæður þeirra.

 

Farskólinn 2026 á Ísafirði

Líkt og komið hefur fram verður næsti farskóli Félags íslenskra og safnafólks haldinn á Ísafirði! Það er um að gera að taka dagana frá strax, en hann mun fara fram 7.-9. október 2026. Yfirskrift farskólans verður Samfélagsleg ábyrgð safna: Aðgengi og inngilding. Farskólastjóri er Jóna Símonía Bjarnadóttir forstöðukona Byggðasafns Vestfjarða, með henni í stjórn eru Helga Aradóttir, Rannveig Jónsdóttir og Dagrún Ósk Jónsdóttir.

Farskóli FÍSOS er árleg ráðstefna fagfólks á íslenskum söfnum, skipulögð af Félagi íslenskra safna og safnmanna. Á farskóla er lögð áhersla á að fyrirlestrar, erindi og vinnustofur nýtist ráðstefnugestum í faglegu starfi sínu. Ráðstefnan er mikilvæg starfsfólki safna í starfsþróun og símenntun, skipulögð með það að markmiði að vera dýrmætur vettvangur fræðslu-, þekkingar- og tengslamyndunar.

Þó nokkuð langt er liðið frá því að farskóli fór síðast fram á Ísafirði en það var 2008. Nánari upplýsingar munu týnast inn jafnt og þétt á nýju ári og við hlökkum til að sjá ykkur á farskólanum 2026.

 

Hagnýtar upplýsingar

Við biðjum ykkar að hafa í huga að farskólinn mun hefjast í kringum 9:45 miðvikudaginn 7. október svo fyrir þau sem koma akandi getur verið sniðugt að koma daginn áður. Þá reiknum við með að farskólanum verði slitið í kringum kl. 13:00 föstudaginn 9. október.  Okkur langar líka að biðla til fólks, þar sem gistirými er takmarkað, að tvímenna í herbergi ef mögulegt er.

Fyrir þau sem vilja byrja að skoða gistingu er gott að vita að Hótel Ísafjörður hefur verið tekið frá fyrir ráðstefnuna og mun veita ráðstefnugestum afslátt, en hægt er að bóka herbergi þar með því að senda póst á lobby@hotelisafjordur.is og skrifa FÍSOS í efnislínuna. Þá er auðvitað að finna fjölbreytta gistimöguleika á svæðinu.

 

Óskað eftir málstofum

Stjórn Farskóla FÍSOS 2026 óskar eftir áhugasömum aðilum til að stýra málstofum á farskólanum. Hver málstofa er 60 mínútur að lengd. Við hvetjum safnafólk til að leika sér með formið. Málstofur geta bæði verið hefðbundnar, með erindi og umræðu, en einnig hvetjum við safnafólk til að búa til málstofur, sem bjóða upp á gagnvirka fræðslu og umræður. Málstofur þurfa ekki að tengjast þemanu beint.

Áhugasöm geta sent tillögur og hugmyndir til Dagrúnar á netfangið doj@hi.is fyrir föstudaginn 20. mars.