Farskóli safnmanna 2009 á Hótel Hvolsvelli
Farskóli íslenskra safnmanna verður haldinn á Hótel Hvolsvelli 16. – 18. september næstkomandi.
þar verður því meðal annars fagnað að 20 ár eru liðin frá því safnmenn hittust fyrst á farskóla.
Í stjórn farskólans sitja:
Lýður Pálsson farskólastjóri, Eyrarbakka,
Ágústa Kristófersdóttir, Reykjavík,
Inga Lára Baldvinsdóttir, Eyrarbakka,
Sverrir Magnússon, Skógum,
Þuríður H. Aradóttir, Hvolsvelli,
Stjórn farskólans heldur dagskrárfund þann 14. apríl næstkomandi á Eyrarbakka. Ef safnmenn vilja koma á framfæri hugmyndum þá geta þeir haft samband við skólastjórann.
Kveðja stjórnin