27/03/2026
Vorráðstefna ICOM Nord – Reykjavík 2026
Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi: Sameiginleg saga okkar og framtíð fyrir öll
Á tímum sem einkennast af hnattrænni spennu, samfélagslegum breytingum og óvissu í umhverfismálum er æ oftar horft til safna sem vettvangs fyrir opna umræðu og aukinn skilning milli fólks. Vorráðstefna ICOM Nord 2026 leiðir saman safnafólk frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum til að velta því fyrir sér hvernig söfn geta hjálpað fólki að tengjast, finna sameiginlegan grundvöll og takast á við breytingar samtímans.
Ráðstefnan fer fram í Reykjavík 12. maí 2026 í tengslum við þema Alþjóðlega safnadagsins, sem í ár ber yfirskriftina Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi (e. Museums Uniting a Divided World), og tekur jafnframt mið af undirtitlinum Sameiginleg saga okkar og framtíð fyrir öll (e. From Shared Histories to Common Futures). Þá samanstendur dagskráin af fyrirlestrum, pallborðsumræðum og safnaheimsóknum, þar sem sjónum er beint að átökum og samvinnu, endurheimt menningararfs og ábyrgð safna, auk hlutverks þeirra í því að móta skilning okkar á fortíð, nútíð og framtíð.