Farskóli FÍSOS mun fara fram dagana 7.-9. október á Ísafirði og er undirbúningur í fullum gangi. Þema farskólans verður Samfélagsleg ábyrgð safna: Aðgengi og inngilding.
Stjórn Farskóla FÍSOS 2026 óskar eftir áhugasömum aðilum til að stýra málstofum á farskólanum. Hver málstofa er 60 mínútur að lengd. Við hvetjum safnafólk til að leika sér með formið. Málstofur geta bæði verið hefðbundnar, með erindi og umræðu, en einnig hvetjum við safnafólk til að búa til málstofur, sem bjóða upp á gagnvirka fræðslu og umræður. Málstofur þurfa ekki að tengjast þemanu beint.
Áhugasöm geta sent tillögur og hugmyndir til Dagrúnar verkefnastjóra FÍSOS á netfangið doj@hi.is fyrir föstudaginn 20. mars.
Til farskólagesta: Við biðjum ykkar að hafa í huga að farskólinn mun hefjast í kringum 9:45 miðvikudaginn 7. október svo fyrir þau sem koma akandi getur verið sniðugt að koma daginn áður. Þá reiknum við með að farskólanum verði slitið í kringum kl. 13:00 föstudaginn 9. október. Okkur langar líka að biðla til fólks, þar sem gistirými er takmarkað, að tvímenna í herbergi ef mögulegt er.
Kær kveðja, frá Farskólastjórn 2026