Warning: assert() has been disabled for security reasons in /var/www/virtual/safnmenn.is/htdocs/wp-includes/sodium_compat/autoload.php on line 67
Fjölbreytileiki samfélagsins og framtíð safna – FÍSOS
  • 17/05/2025

    Fjölbreytileiki samfélagsins og framtíð safna

    Þema Alþjóðlega safnadagsins í ár er Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum. Söfn hjálpa okkur að skilja okkur sjálf og samfélagið. Þau eru vettvangur samtals, staðir til að öðlast þekkingu, skilning og byggja brýr milli fólks. Það er ljóst að framkoma, ákvarðanir, upplýsingaóreiða og hræðsluáróður valdhafa getur haft alvarlegar afleiðingar og valdið bakslagi og afturför í jafnréttismálum. Ísland hefur lengi talist vera í fararbroddi í þessum efnum og öðrum ríkjum til fyrirmyndar. Söfn hafa lagt sitt af mörkum til að auka jafnrétti og efla lýðræði. Hlutverk safna er meðal annars að fræða og miðla en það er mikilvægur þáttur í að standa vörð um lýðræði og mannréttindi. Þá er nauðsynlegt að taka afstöðu og standa með hópum sem eiga undir högg að sækja.

    Söfn á Íslandi fordæma valdhafa sem leitast við að endurskrifa söguna svo hún falli betur að þeirra eigin heimsmynd. Þetta hefur til dæmis viðgengist með inngripi ráðamanna, svo sem með ritskoðun á efnistökum safna og markvissum niðurskurði á fjárlögum til stofnana sem miðla sögu og upplýsingum á hátt sem er valdhöfum lítt þóknanlegur. Það er hins vegar mikilvægt að standa vörð um sjálfstæði safna, sem njóta trausts almennings og byggja starf sitt og sýningar á faglegum rannsóknum. Að sama skapi fordæma söfn á Íslandi aðför stjórnvalda víða um heim gegn trans og intersex fólki, þar sem þau eru svipt réttindum sínum og mannvirðingu með gerræðislegum hætti. Við tökum því einnig undir og styðjum yfirlýsingu Samtakanna ’78.

    Söfn á Íslandi miðla sögu, gögnum og upplýsingum frá ólíkum sjónarhornum, fagna fjölbreytileikanum og leggja sig fram við að vera griðastaður fyrir öll. Þessi atriði eru hornsteinn safna og safnastarfs.

     

    Undirskriftir:

    Aldís Arnardóttir, forstöðumaður Hafnarborgar

    AlmaDís Kristinsdóttir, safnstjóri Listasafns Einars Jónssonar

    Árni Pétur Hilmarsson, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga

    Berglind Þorsteinsdóttir, safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga

    Björg Björnsdóttir, safnstjóri Minjasafns Austurlands

    Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður Byggðasafns Dalvíkurbyggðar

    Brynja Sveinsdóttir, forstöðumaður Gerðarsafns og Náttúrufræðistofu Kópavogs

    Elfa Hlín Sigrúnar Pétursdóttir, safnstjóri Tækniminjasafns Austurlands

    Eva Björk Káradóttir, safnstjóri Hvalasafnsins á Húsavík

    Eva Kristín Dal, forstöðumaður Byggðasafns Reykjanesbæjar

    Gígja Óskarsdóttir, safnstjóri Sagnheima byggða- og náttúrugripasafns Vestmannaeyja

    Guðbrandur Benediktsson, safnstjóri Borgarsögusafns Reykjavíkur

    Guðný Dóra Gestsdóttir, safnstjóri Gljúfrasteins

    Guðrún Dröfn Whitehead, lektor í safnafræði við Háskóla Íslands

    Haraldur Þór Egilsson, safnstjóri Minjasafnsins á Akureyri

    Harpa Þórsdóttir, þjóðminjavörður

    Helga Þórsdóttir, safnstjóri Listasafns Reykjanesbæjar

    Hilmar J. Malmquist, forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands

    Hjördís Pálsdóttir, safnstjóri Byggðasafns Snæfellinga og Hnappdæla

    Hjörtur Þorbjörnsson, forstöðumaður Grasagarðs Reykjavíkur

    Hólmar Hólm, formaður Íslandsdeildar ICOM, Alþjóðaráðs safna

    Ingibjörg Jóhannsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands

    Jón Allansson, forstöðumaður Byggðasafnsins í Görðum

    Kristín Halla Baldvinsdóttir, formaður FÍSOS, Félags íslenskra safna og safnafólks

    Kristín Scheving, safnstjóri Listasafns Árnesinga

    Kristján Steingrímur, safnstjóri Listasafns Háskóla Íslands

    Lýður Pálsson, safnstjóri Byggðasafns Árnesinga

    Margrét I. Ásgeirsdóttir, forstöðukona Byggðasafnsins á Garðskaga

    Odda Júlía Snorradóttir, safnstjóri Nýlistasafnsins

    Ólöf Kristín Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur

    Ragnhildur Helga Jónsdóttir, safnstjóri Landbúnaðarsafns Íslands

    Sigríður Guðmundsdóttir, safnstjóri Sauðfjárseturs á Ströndum

    Sigríður Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands

    Sigríður Örvarsdóttir, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri

    Sigurjón Baldur Hafsteinsson, prófessor í safnafræði við Háskóla Íslands

    Valdís Einarsdóttir, safnvörður á Byggðasafni Dalamanna

    Þóra Björk Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri safnaráðs

    Þóra Sigríður Ingólfsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands

    Þórunn Kjartansdóttir, forstöðumaður Safnahúss Borgarfjarðar

    Safnstjórum höfuð- og viðurkenndra safna á Íslandi, auk fulltrúum námsbrautar í safnafræði og safnaráðs, var boðið að rita undir yfirlýsinguna. Hún er send út 17. maí, á alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks, sem tákn um samstöðu og ábyrgð safna í að standa með mannréttindum, fjölbreytileika og virðingu fyrir öllum. Þá er Alþjóðlegi safnadagurinn haldinn hátíðlegur degi síðar, þann 18. maí.

    Ábyrgðaraðilar listans:

    Hólmar Hólm, formaður Íslandsdeildar ICOM, Kristín Halla Baldvinsdóttir, formaður FÍSOS og Dagrún Ósk Jónsdóttir, verkefnisstjóri Alþjóðlega safnadagsins á Íslandi.