Stjórn FÍSOS – Félags íslenskra safna og safnmanna boðar hér með til aðalfundar félagsins miðvikudaginn 21. september 2022 kl. 10:00.
Fundurinn fer að þessu sinni fram á Hótel Hallormsstað.
Dagskrá aðalfundar:
Óskað er eftir framboðum til stjórnar í stöðu formanns og meðstjórnanda.
Þá er einnig lýst eftir framboði til varamanns í stjórn sem og eins skoðunarmanns reikninga.
Áhugasamir geta lýst yfir framboði með því að senda tölvupóst á stjorn@safnmenn.is og þurfa framboð að hafa borist sjö dögum fyrir aðalfund.
Kjörgengi hafa þeir félagsmenn sem greitt hafa árgjald félagsins fyrir aðalfund eða eru heiðursfélagar.
Vægi atkvæða á fundum félagsins er einn félagsmaður, eitt atkvæði og ein stofnun, eitt atkvæði. Fer forsvarsmaður stofnunar með atkvæði hennar á fundum félagsins eða fulltrúi í umboði hans.
Bestu kveðjur frá stjórn FÍSOS,
Í stjórn félagsins 2021-2022 sitja:
Formaður: Anita Elefsen, Síldarminjasafn Íslands.
Varaformaður: Elsa Guðný Björgvinsdóttir, Minjasafn Austurlands.
Gjaldkeri: Jón Allansson, Byggðasafnið á Görðum.
Ritari: Ingibjörg Áskelsdóttir, Borgarsögusafn Reykjavíkur.
Meðstjórnandi: Þóra Sigurbjörnsdóttir, Hönnunarsafn Íslands.
Varamenn: Hjörtur Þorbjörnsson, Grasagarður Reykjavíkur og
Sigríður Þorgeirsdóttir, Þjóðminjasafn Íslands.