• 07/09/2022

    Farskóli FÍSOS 2022 á Hallormsstað

    Söfn á tímamótum: Tímamót í varðveislu, tímamót í miðlun, tímamót í hugsun

     

    Dagskrá 

    Miðvikudagur 21. september 

    08:45 Skipulögð rútuferð frá Egilsstaðaflugvelli inn í Hallormsstað 

    09:00-10:00 Mæting á Hótel Hallormsstað og innskráning á ráðstefnu: Skráning á ráðstefnu í ráðstefnusal.   

    10:00-11:00 Farskóli settur – Aðalfundur FÍSOS 

    11:00-12:00 Fyrirlestrar  

    Starfsumhverfi framtíðarinnar – tækifæri safna – Dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Vinnumarkaðssérfræðingur (í fjarfundi) 

    Menningarmiðlun á nýjum tímum – Skúli Björn Gunnarsson, Gunnarsstofnun 

    12:00-13:00 Hádegismatur: Matarmikil nautakjötssúpa með súrdeigsbrauði 

    Hluti hópsins innritar sig á hótelið og restin þegar komið er til baka frá Egilsstöðum 

    13:00 Skoðunarferð  

    Ekið sem leið liggur á Seyðisfjörð og Tækniminjasafn Austurlands heimsótt. Skoðum m.s. Vélsmiðjuna sem varð fyrir skriðunni 2020, skoðum ljósmyndasýningu á Lónsleiru og fræðumst um samstarfsverkefni safnsins sem tengist grisjun og uppvinnslu safnkosts. 

    17:00 Heimsókn á Minjasafnið á Egilsstöðum / Veitingar í boði Safnaráðs 

    18:30 Matur í Valaskjálf / Pizza og Sushi 

    Kynningar á drykkjum/ Happy hour tilboð 

    20.00 „Sing along“ gítarpartý með Grétu í Dúkkulísunum í Valaskjálf 

    22:00 Skipulögð rútuferð frá Hótel Valaskjálf inn á Hallormsstað. 

     

    Fimmtudagur 22. september 

    09:00-10:00 Fyrirlestrar 

    Deaccessioning in the Netherlands – Ellie Bruggeman, Museumregister Nederland (í fjarfundi)

    Arftaki Sarps 3 – staðan á verkefninu – Vala Gunnarsdóttir, Fagstóri Sarps

    10:00-11:00 Málstofur  

    Óáþreifanlegur menningararfur, hvað kemur hann söfnum við?Vilhelmína Jónsdóttir 

    Að dansa nær grænu skrefunum, umhverfismál og safnastarf – Alma Sigrún Sigurgeirsdóttir 

    Persónuvernd og ljósmyndir – Hörður Geirsson 

    Tökum höndum saman: söfn og jaðarhópar – Hlín Gylfadóttir og Ingibjörg Hannesdóttir

    11:00-12:00 Málstofur 

    Varðveisla báta á Íslandi: breyttar aðferðir – Ágúst Österby 

    Námskrármiðuð safnfræðsla – málstofa og vinnusmiðja – Helga Einarsdóttir 

    Hönnunarhugsun í safnastarfi – Sigríður Sigurjónsdóttir 

    Safnafræði og fagefling safna: staða og tækifæri til frekari vaxtar með söfnum landsins – Sigurjón B Hafssteinsson og Guðrún Dröfn Whitehead 

    12:00-13:00 Hádegismatur: Gómsæt grænmetissúpa með brauði og salatbar 

    13:00-14:00 Örfyrirlestrar, fyrirmyndarverkefni 

    Kynningar á verkefnum sem tilnefnd voru til íslensku safnaverðalaunanna 2022 

    14:00-15:00 Málstofur 

    Grisjunaráætlun og hvað svo? – Tækniminjasafn Austurlands 

    Stafræn miðlun og varðveisla menningararfs – Skúli Björn Gunnarsson 

    Ný safnaskilgreining ICOM – Ólöf Gerður Sigfúsdóttir og Hólmar Hólm 

    Skráning ljósmynda: frá móttöku til frágangs – Þorvaldur Böðvarsson og Kristín Halla Baldvinsdóttir 

    15:00-15:30 Kaffi og spjall

    Fulltrúar Safnaráðs til viðtals. Jóhanna Bergmann safnkennari spjallar við áhugasöm um verk sitt Hugmyndahattinn – handbók fyrir grunnskólakennara um skapandi samstarf við söfn. Fulltrúar Náttúruminjasafns Íslands kynna viðburðina „Steinagreining“ og „Eldfjöll“ og hugmyndir um hvernig önnur söfn geta nýtt þá í sínu starfi.

    15:30-17:00 Gönguferð um Hallormsstað 

    Ævintýraferð um skóginn (hópnum skipt í tvennt). Á leiðinni heimsækjum við annars vegar Hallormsstaðaskóla og fáum kynningu á starfsemi hans og hins vegar Skógræktina og fáum leiðsögn um Trjásafnið.  

    17:00-19:00 Happy hour tilboð á barnum 

    19:00 Árshátíð!  

     

    Föstudagur 23. september 

    09:00-09:30 Frjáls fundartími fyrir hópa 

    09:30-10:30 Fyrirlestrar 

    Rannsóknastarf safna – áskoranir og tækifæriDr. Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, Safnafræðingur 

    Mikilvægi kynningarstarfs í menningartengdri ferðaþjónustuSigríður Dögg Guðmundsdóttir, Fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu 

    10:30-11:30 Pallborð – Eru söfn ferðþjónusta?   

    Þátttakendur í pallborði:  

    Lilja Alfreðsdóttir, menningar– og viðskiptaráðherra  

    Aníta Elefssen formaður FÍSOS og safnstjóri Síldaminjasafns Íslands 

    Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu 

    Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitastjórnar Múlaþings

    Umsjón pallborðs – Signý Ormarsdóttir, yfirverkefnastjóri hjá Austurbrú 

    11:30-12:00 Styrkjaúthlutun Safnaráðs  

    12:00-12:45 Hádegismatur: Súpa og salatbar með fiskrétti dagsins 

    13:00 Skoðunarferð inn í Fljótsdal  

    Heimsækjum Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri og Óbyggðasetrið 

    16:00+ Komið til Egilsstaða, frjáls tími fram að flugi eða til 18:40 

    Rútuferð frá miðbæ Egilsstaða á flugvöllinn. Nánari staðsetning og tími auglýst síðar 

     

    Dagskráin er sett fram með fyrirvara um breytingar.  

    Hlökkum til að sjá ykkur!